Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur valið trúboðaprestinn Rick Warren sem innvígslustjóra þegar Obama verður vígður inn í embætti forseta Bandaríkjanna í janúar. Valið hefur ekki fallið vel í kramið hjá samkynhneigðum en Warren er upphafsmaður Saddleback kirkjunnar í Kaliforníu og er á móti hjónabandi samkynhneigðra og fóstureyðingum, sem demókratar eru oftast fylgjandi.

Warren hefur þó getið sér góðs orðs í baráttu gegn málefnum eins og alþjóðlegri fátækt, mannréttindabrota og eyðni. Linda Douglass, talsmaður Obama segir að jafnvel þótt Warren og Obama séu ekki sammála um hjónaband samkynhneigðra þá hafi það alltaf verið markmið Obama að finna sameiginlegan grundvöll með fólki sem er ósammála honum. Auk þess eru þeir tveir, Obama og Warren, sammála um ýmislegt annað.
465 Athugasemdir   Bæta þessum tengli við í...  Grafa

Athugasemdir Kjósendur Heimildir Tengdar fréttir